Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
funderOuter

PÁLL ÓLAFSSON


Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar. - Páll Ólafsson , Ljóðið Vetrarkveðja
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Sæt er heit og saklaus ást,
sárt er hana' að dylja;
eins og það er sælt að sjást,
sárt er líka' að skilja. - Páll Ólafsson
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Vonin mér í brjósti býr,
bezti hjartans maður.
Vonin aldrei frá mér flýr,
fyrri en ég er dauður. - Páll Ólafsson
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Satt og logið sitt er hvað
sönnu er bezt að trúa.
En hvernig á að þekkja það,
þegar flestir ljúga. - Páll Ólafsson
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Tíminn mínar treinir ævistundir.
Líkt sem kemba' er teygð við tein,
treinir hann mér sérhvert mein.

Skyldi hann eftir eiga' að hespa', spóla
og rekja mína lífsins leið,
láta í höföld, draga í skeið?

Skyldi' ann eftir eiga að slíta, hnýta,
skammel troða, skeið að slá,
skjóta þráðum til og frá?

Skyldi hann eftir eiga mig að þæfa,
síðan úr mér sauma fat,
síðast slíta á mig gat?

Skyldi' ann eftir eiga mig að bæta?
Það get eg ekki gizkað á,
en gamall held eg verði þá. - Páll Ólafsson , Ljóðið "Tíminn" Ljóðmæli 1944
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: