|
Sá kennir öðrum vaðið sem undan ríður
|
|
Sælt er sameiginlegt skipbrot.
|
|
Sultur gerir sætan mat.
-
|
|
Skal vinar í þörf neyta.
|
|
Seint fyrnast fornar ástir.
|
|
Sá sparsami er allra mann ríkastur.
Sá ágjarni er allra manna fátækastur.
|
|
Sárt bítur soltin lús.
|
|
Sá vægir sem vitið hefur meira.
|
|
Sá sem aldrei gerir mistök, gerir heldur ekki neitt.
|
|
Segðu mér hver förunautur þinn er. Ég skal segja þér hver þú ert.
-
|
|
Sjón er sögur ríkari.
|
|
Sjaldan er búbætir í bónarverði né bjarnarslátri.
|
|
Sjaldan deyja búrkonur fyrir búrdyrum.
|
|
Sæt er sjálfsgeta, ef sjálfur náir að eta.
|
|
Sá þarf ekki að bíta bein sem að heimboði situr.
|
|
Sá sem heflur í eldi tvennt, annað hvort mun verða brennt.
|
|
Sá má fullvel fasta sem fisk hefur á borði.
|
|
Sá étur mest úr fatinu sem fjærst því situr.
|
|
Sá etur flest sem fæst á.
|
|
Sá er verðugur síns kjöts er sitt kál át.
|
|
Sá er brytinn verstur, er sjálfan sig tælir.
|
|
Spakt skyldi elsta barn og vel vanið.
|
|
Sjaldan er ein báran stök.
|
|
Skoðaðu óskir þínar vel áður en þú sleppir þeim lausum.
|
|
Sækjast sér um líkir.
|
|
Sjaldan vinnst vel varaður glæpur
|
|
Sérhver þekkitst af sínum verkum.
|
|
Skjótt er skitið verk.
|
|
Sjaldan er gott uppeldi oflaunað, nema illu sé.
|
|
Seint er að byrgja brunninn, þá barnið er dottið ofan í.
|
|
Sá veldur miklu sem upphafinu veldur
|
|
Sælla er að veita en þarfnast
|
|
Sá verður að vaka sem öðrum á að halda vakandi
|
|
Seint vaknar sá sem aldrei vaknar
|
|
Sá sem ekki vill, þegar hann má, fær ekki þegar hann vill.
|
|
Sigursæll er góður vilji.
|
|
Stuttur er vegurinn góður að fara
|
|
Sterkur þekkist af sínum verkum.
|
|
Sá er vinur sem í raun reynist.
|
|
Sum vinátta er svikum næst.
|
|
Sitt er hvað, gæfa eða gjörvugleikur.
|
|
Sannleikurinn heldur höndunum hreinni en sápa.
|
|
Sá hefur ekki liðið skort sem ekki hjálpar öðrum.
|
|
Sá lifir leiðu lífi sem lifir aðeins fyrir sig.
|
|
Sá sem veit og veit að hann veit, hann er gáfaður - fylgdu honum.
Sá sem veit og veit ekki að hann veit, hann er sofandi - vektu hann.
Sá sem ekki sefur en veit ekki að hann veit ekki, hann er fífl - forðastu hann.
Sá sem veit ekki og veit að hann veit ekki, hann er barn - kenndu honum.
|
|
Sá sem ekki sáir í æsku uppsker ekki í ellinni.
|
|
Sá sem ekki virðir það smáa er ekki verður þess stóra.
|
|
Sá sem ekki gortar verður sér ekki til skammar.
|
|
Segðu ekki þeim sem ber þig á bakinu að ólykt sé af höfði hans.
|
|
Sá sem fátt veit gleymir fáu.
|
|
Segðu ekki það fyrsta sem þér dettur í hug.
|
|
Sá sem afsakar sjálfan sig að ástæðulausu ákærir sjálfan sig.
|
|
Sá sem ekki bætir sig í dag er verri á morgun.
|
|
Sá sem aldrei byrjar líkur aldrei verki.
|
|
Sá sem aldrei klífur dettur aldrei.
|
|
Smátt og smátt kemst maður langa leið.
|
|
Skrattinn gleymir skapara sínum.
|
|
Segdu ekki "leggstu" vid gamlan hund því hann veit meira en þú.
|
|
Sá er ekki maður sem getur aflað fjár heldur sá sem getur gætt þess.
|
|
Sá sem reiðist á við tvennan vanda að stríða, að vera reiður og að verða glaður að nýju.
|
|
Sá sem flýr hefur ekki tíma til að velja sér leið.
|
|
Sólin kemur hversu löng sem vetrarnóttin er.
|
|
Stóru fiskarnir éta þá litlu.
|
|
Sá sem kastar aur í aðra verður sjálfur skítugur á höndunum.
|
|
Sá sem bíður með góðu verkin til að gera þau öll í einu mun aldrei gera neitt.
|
|
Sá sem lítilsvirðir þann fátæka verður aldrei ríkur.
|
|
Sá sem fyrirgefur ekki lítið fyrirgefur heldur ekki mikið.
|
|
Sá sem selur krafta sína ódýrt uppsker virðingu, sá sem selur munn sinn ódýrt uppsker fyrirlitningu.
|
|
Sá sem ekkert hefur þolað getur ekki sýnt meðaumkun.
|
|
Segðu manni að hann sé hugrakkur og þú hjálpar honum að verða það.
|
|
Sýndu mér vini þína og ég skal segja hver þú ert.
|
|
Sá sem hygginn er lærir margt án bókar.
|
|
Sá sem margs spyr eykur mörgum visku.
|
|
Sá sem ekki vill þiggja ráð lærir þegar andstreymið hittir hann.
|
|
Snemma í rúmið og snemma á fætur og þú hittir fáa af framámönnum.
|
|
Segðu ekki allt sem þú hugsar en hugsaðu allt sem þú segir.
|
|
Saddur hundur bítur húsbónda sinn.
|
|
Sá sem ekki er þakklátur fyrir litlu hlutina verður ekki þakklátur fyrir þá stóru.
|
|
Sá sem sáir nægjusemi uppsker frið.
|
|
Sá sem margt veit talar fátt.
|
|
Sök bítur sekan.
|
|
Svipur mannsins ber nægilegt vitni um hamingju hans og óhammingju án þess að hann sé um það spurður.
-
|
|
Sál náungans er dimmt djúp.
-
|
|
Stökktu ekki fyrr en að skurðinum kemur.
|
|
Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.
|
|
Sá sem sefur syndgar ekki.
|
|
Synd er ekki fullkomnuð fyrr en maður hrósar sér af henni.
|
|
Sá sem hefur mikla ást á sjálfum sér hefur litla ást á öðrum.
|
|
Sá sem heyrir vel talar vel.
|
|
Sá fær ekkert gott sem segir eitthvað illt.
|
|
Sá sem blaðrar mikið lýgur miklu.
|
|
Sá sem aðra svertir er ekki hvítur fyrir því.
|
|
Sá sem fleiprar við þig fleiprar um þig.
|
|
Sá sem ekki slapp við fæðingu sleppur ekki við dauða.
|
|
Sá sem hefur komist í nánd við dauðann þekkir gildi lífsins.
|
|
Sá sem dáir fortíðina missir tökin á nútímanum.
|
|
Skugginn fylgir manninum.
|
|
Segðu fátt og segðu það vel.
|
|
Sama tungan færir okkur heiður og skömm.
|
|
Segðu ekki það sem þú vilt að enginn viti.
|
|
Sá sem talar hratt bítur sig í tunguna.
|
|
Sá sem klifrar upp stiga þarf líka að komast niður.
|
|
Sá sem ekki grípur tækifærið mun brjóta heilann um það til æviloka.
|
|
Svo má það vera fiskur og smjör, að það drepi mann.
|
|
Sveltur sauðlaust bú.
|
|
Stutt er kútaveislan.
|
|
Strokkvolgar áfir svala best.
|
|
Sá sem skelfiskinn vill éta, verður skelina að brjóta.
|
|
Sá þegir, sem ekkert segir.
|
|
Sama höndin veldur sársaukanum og græðir meinið.
|
|
Samlíkir fuglar fljúga sér í hóp.
|
|
Sanngirni er sátta móðir.
|
|
Sannkveðið er söngurinn besti.
|
|
Sannleikurinn er sagna bestur.
|
|
Sá á fæst sem flestu stelur.
|
|
Sá á kvölina sem á völina.
|
|
Sá árla rís verður margs vís.
|
|
Sá bindir sig mikið sem mútuna þiggur.
|
|
Sá eldur sem skærast brennur, slokknar fyrst.
|
|
Sá er drengur sem við gengur.
|
|
Sá er ekki skaðlaus sem skaðar sjálfan sig.
|
|
Sá er montnastur sem minnst er í varið.
|
|
Sá er ríkur sem fáar hefur þarfir.
|
|
Sá gefur tvisvar sem gefur fljótt.
|
|
Sá gefur mest sem minnst má.
|
|
Sá heimski heldur hvern mann heimskari sér.
|
|
Sá hlýtur eldinn að skara, sem kalda vini vill verma.
|
|
Sá hlær best sem síðast hlær.
|
|
Sá metti álítur, að sá soltni geti borðað molana.
|
|
Sá sem aldrei er forvitinn verður aldrei fróður.
|
|
Sá sem eltir tvær gæsir í senn, nær hvorugri.
|
|
Sá sem er hræddur við að spyrja er hræddur við að læra.
|
|
Sá sem getur ekki bitið ætti ekki að sýna tennurnar.
|
|
Sá sem hugsar sig lengi um velur sjaldan besta kostinn.
|
|
Sá sem hættir að bæta sig hættir að vera góður.
|
|
Sá sem leikur sér að lífinu getur aldrei farið vel.
|
|
Sá sem hefur lélegt minni ætti sýst að ljúga.
|
|
Sá sem rís á fætur í hvert skipti, sem hann fellur, stendur uppréttur að lokum.
|
|
Sá sem vill læra finnur allstaðar skóla.
|
|
Sá sem vill mjólk, ætti ekki að setjast á stól með fötu úti í haga og bíða eftir því að kýrin komi til hans.
|
|
Sá skal reykinn varast, sem firra vill sig bálinu.
|
|
Sá skal vægja sem vitið hefur meira.
|
|
Sá þarf lítið sem lítið girnist.
|
|
Sá þarf mikið að sjóða, sem mörgum vill bjóða.
|
|
Sér eignar smali féð, þó enga eigi kindina.
|
|
Sá sem á gullið, setur reglurnar.
-
|
|
Sinn er siður í hverju landi.
-
|
|
Stolinn hestur hleypur best.
|
|
Sjálfboðið er góðum gesti.
|
|
Sá fær happ sem hamingjan ann.
|
|
Sjaldséðir eru hvítir hrafnar.
|
|
Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju.
|
|
Sér eignar smalinn féð, þó enga eigi hann kindina.
|
|
Sætur er sonar afli.
|
|
Sá einn veit sem reynir.
|
|
Sá er sæll sem sínu ann.
|
|
Svo liggur hver sem hann hefur um sig búið.
-
|