Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
 
 
Of snögg hlaup gera iðrunarkaup. - Svipað á ensku: "Learn to walk before you run." - Bein þýðing: Lærðu að ganga áður en þú hleypur.
Oft skiljast leiðir um síðir. - Á ensku: "The best of friends must part." - Bein þýðing: Hinir bestu vinir hljóta að fara hver sína leið.
Oft er flagð undir fögru skinni.
Oft er stór kólfur í lítilli klukku.
Oft verða beinaspjöll á boðinu.
Oft skiljast góðir drykkir af dönsku keri.
Oft er kám á kokks nefi.
Oft er í hofgörðum ótrútt brauð.
Oft er böl í bústangi.
Oft batnar við beiskan drykk.
Oft verður vesall að manni.
Oft er kröggur í vetrarferð.
Oft er veiðin sýnd, en ekki gefin
Oft vinnur sá sem undan lætur.
Oft verður ofsað til vansa
Orðspor ills manns berst víða.
Oft vantar þann viljann sem efnin hefur nóg.
Of mikil hugsun fjötrar hendurnar.
Of margir kokkar spilla súpunni.
Oft er gott sem gamlir kveða.
Oft kemur góður þá getið er, svangur þá etið er og illur þá um er rætt.
Oft er vont að velja vondan kost.
Oft er sjaldan stundum.
Oft dregur lofið háðið á halanum.
Oft er ánægjan synd og syndin ánægja.
Oft er dyggð undir dökku hári.
Oft er karlmanns hugur í konu brjósti.
Oft er ljótur draumur fyrir litlu.
Oft er málsnjall miðlungi sannorður.
Oft er misjafn sauður í mörgu fé.
Oft er snotur seinn til svars.
Oft er tungutrúr tíðindafár.
Oft eru augu innra manns spegill.
Oft fara saman skörp tunga og skýr hugsun.
Oft fylgja sterk orð veikum röksemdum.
Oft gleður sá aðra sem glaður er.
Oft hefur vinnulatur viljuga tungu.
Oft má lyf úr eitri brugga.
Oft má satt kyrrt liggja.
Oft skoðar latur maður verk sitt.
Oft snýst góðum last í lof.
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
Oft verður af litlum neista stórt bál.
Oft verður grátt úr gamni.
Oft vex laukur af litlu.
Oft vinnst sigur í seinni ferð.
Orða sinna á hver ráð.
Oft er það gott sem gamlir kveða.
Oft má að liði verða þó lítill sé.
Oft kemur grátur eftir skellihlátur.
Oft er í fögru herbergi ófríður húsbóndi.
Oft verður góður hestur úr göldnum fola.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: