|
Lífið er ljúft sé því vel lifað.
|
|
Lengi getur fullur etið og latur legið.
|
|
Lengi má fleskið hanga, sé ei á því tekið.
|
|
Lengi skyldi góðan graut á gólfi hræra.
|
|
Lítil er barns huggun.
|
|
Lífið er gáta, lausnin er á bakhlið þess.
|
|
Lengi býr að fyrstu gerð.
|
|
Lagður vegur er léttfarnastur
|
|
Lagður vegur segir leiðina
|
|
Lin eru vettlinga tökin.
|
|
Lyf getur unnið á ímynduðum sjúkdómi, vín getur ekki hrakið burt sanna sorg.
|
|
Lærðu af nýjum bókum en gömlum kennurum.
|
|
Lærdómur er fjársjóður sem fylgir eiganda sínum hvert sem hann fer.
|
|
Lærdómur án hugsunar er fánýtur. Hugsun án lærdóms er hættuleg.
|
|
Ljúf byrði er léttbær.
|
|
Lifðu skynsamlega, þá getur þú lifað án lækna.
|
|
Lítil gjöf er betri en stórt loforð.
|
|
Láttu heimskingjann afskiptalausan og hans eigið tal mun dæma hann.
|
|
Leitaðu ráða hjá öðrum en taktu ákvörðunina sjálfur.
|
|
Lengi má böl bæta með því að benda á annað verra.
|
|
Laun heimsins eru vanþakklæti.
|
|
Lygaranum er ekki trúað, jafnvel ekki þegar hann segir satt.
|
|
Líkur sækir líkan heim.
|
|
Ljúgðu engu hafir þú ekkert að segja, lofaðu engu hafir þú ekkert að bjóða.
|
|
Leynist straumur í lygnu vatni.
|
|
Lík börn leika best.
|
|
Litlu verður Vöggur feginn.
-
|
|
Lofa skal mey að morgni, veður að kvöldi.
|
|
Létt eru lostaverk.
-
|
|
Lífið er of stutt til að borða vondan mat.
|