Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
 
 
Hjú sem herra, bú sem bóndi. - Svipað á ensku: "Like master, like man." - Bein þýðing: Starfsmaður tekur eftir húsbónda.
Hugur ræður hálfum sigri.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Hvað ungur nemur gamall temur.
Hægt er lítinn graut að súpa.
Hafi sá dreggjar er saup af staupinu.
Hið feita vill ætíð upp fljóta.
Hollur er heimabitinn.
Hungur kennir höndum vinnu.
Hver éti bjúga meðan heitt er.
Hver lax er mjóstur við sporðinn.
Hver skarar eld að sinni köku.
Hverju beini verður að fylgja nokkuð.
Hálfnað verk þá hafið er.
Heima er best.
Hver fær sína vöru selda
Hvert vatn fellur til sinna æða
Hundurinn er feitur en ekki góður til átu.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Heima hjá sér er hundurinn ljón. - (Burushaski- Indland)
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Hálfnað er verk, þá hafið er.
Hver vottar sína veru
Hvert vín hefur sinn smekk.
Hver á vin með óvinum.
Hvert verk lofar sig sjálft.
Hafir þú unnið gott verk þá leyndu því. Hafi þér verið gert gott þá segðu frá því.
Helvíti er fullt af vanþakklátum.
Heimurinn er eins og býflugnabú. Við komum öll inn um sömu dyr en búum í mismunandi hólfum. - Afrískur málsháttur.
Haltu því gamla en þekktu það nýja.
Hugleysingjann ber að óttast.
Hugsaðu um allt sem þú sérð.
Hlustaðu hundrað sinnum, hugsaðu þúsund sinnum, talaðu einu sinni.
Hver hurð hefur sinn lykil.
Hálfunnið verk skal hvorki lofa né lasta.
Hagnaður skaðar ekki.
Hetja er sá sem gerir það sem hann getur.
Háð er heimskra gaman.
Heiðradu hundinn vegna húsbónda hans.
Hafðu hægt um þig ef þér vegnar vel.
Hvorki er æskilegt of mikið tal né of mikil þögn, hvorki stöðug rigning né stöðugt sólskin.
Heimska og hroki vaxa á sama tré.
Heimurinn tilheyrir þeim þolinmóða.
Hamingja er ein tegund hugrekkis.
Hlæjandi barn er besta andlitsmynd ánægjunnar.
Hundurinn stækkar og tennur hundsins stækka lika.
Hvernig getur sá öðlast frið sem veldur öðrum sársauka.
Hygginn maður talar ekki um hyggindi sín.
Heimskinginn segir allt sem hann veit.
Heimurinn er mikill kennari en skólagjöldin eru há.
Hjá reyndum manni er gott að gista.
Hundur bítur ekki med rófunni.
Hundar eru hyggnari en margar konur; þeir gelta ekki að húsbónda sínum.
Hundur étur ekki hund.
Hundurinn hefur góðan sið: Hann étur ekki ef honum er ekkert gefið.
Halda einhverju til haga - Varðveita eitthvað (kindur eru rásgjarnar og áttu það til að fara úr haga sínum ef smali var ekki vel á verði.
Hjálp í tíma er tvöföld hjálp.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Hamingjan er eins og sólargeisli sem hinn minnsti skuggi tekur fyrir, en óhamingjan er oft eins og vorregnið. - Kínverskt
Hin lengsta ferð byrjar með einu skrefi. - Kínverskt
Hvert sem höfuðið fer elta fæturnir.
Hræddur flýr þó enginn elti.
Haltu í þína gömlu vini, þeir nýju haldast ekki hjá þér.
Hugsaðu ekki um hvernig þú eigir að sigra heldur hvernig þú eigir að komast hjá því að tapa.
Heppni heimsækir heimskingjann stundum en hún sest aldrei að hjá honum.
Hver hefur sína byrði að bera.
Hlustaðu á hvað þau segja um aðra og þá veistu hvað þau segja um þig.
Hvernig væri lífið ef við hefðum ekki kjark til að reyna neitt.
Heldur eitt satt orð en hundrað falleg.
Hamingjusamt hjónaband er hús sem reisa verður daglega.
Hjólið sem ískrar mest, fær alla smurninguna.
Hátt geltir ragur rakki.
Hefnd egnir til hefnda.
Heilsa er munaði betri.
Heilsan er fátækra manna fasteign.
Heima er best að hvílast.
Heit er sú ást, er í meinum býr.
Hafa skal það er sannara reynist.
Hagnýtni drýgir litla muni.
Hafa skal ráð þó heimskur kenni.
Hamra skal járn meðan heitt er.
Hart hrís gerir börnin vís.
Hatri gleyma margir, en fáir fyrirlitningu.
Hálfu meira er að hirða en afla.
Hátíð er til heilla best.
Heppinn er sá, við hug sinn ræður.
Hjúanna trú styrkir bóndans bú.
Hnífur þess freka er frystur í smjörið.
Hollur er heimafenginn baggi.
Hollur granni er gulli betri.
Hóf er best í hverjum leik.
Hól gleður heimskan.
Hræddur flýr, þó enginn elti.
Hvað skal flot vit feitum sel.
Hver er sínum hnútum kunugastur.
Hver velur sér vini eftir viti.
Hver er blindur í sjálfs síns sök.
Hver er sinnar gæfu smiður.
Hver lítið hefur, hann þó oft gefur.
Hvergi er ótrúr óttalaus.
Hvert land bjargast við sín gæði.
Hygginn heyrir margt, hermir færra.
Hæfilátur hlýtur margra þökk.
Hægara er að kenna heilræðin en halda þau.
Hæg eru heimatökin.
Höfuðið verður fótum falli að varna.
Hlustaðu hundrað sinnum.
Hugsaðu þúsund sinnum.
Talaðu einu sinni. - Tyrkneskur málsháttur
Heimskur er jafnan höfuðstór.
Heimskt er heimalið barn.
Hollt er heima hvað.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Hlátur er eins á öllum tungumálum.
Hundatungan græðir en kattartungan særir.
Hundstungan græðir en kattartungan særir.