Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
 
 
Ekki er hægt að sjá við öllum leka. - Svipað á ensku: "It is no use crying over spilt milk." - Bein þýðing: Það er til lítils að gráta niður hellta mjólk.
Eigi er mark að draumum. - úr Gunnlaugs sögu.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Ei leyna augu, ef ann kona manni.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Ekki eru allir vinir sem í eyrun hlæja.
Ekki er ein báran stök.
Enginn kann sig í góðu veðri heiman að búa.
Ef stendur í hverri lögbók.
Ef þú leitar eftir hjálparhönd, mundu þá eftir þinni.
Eigi er sopið þó í ausuna sé komið.
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Eigi skyldi boga of langt toga.
Einn er vegur allra inn í lífið og söm er leiðin út.
Einn óréttur býður öðrum heim.
Einn er litur allra kúa um nætur.
Eins dauði annars brauð.
Eins skal aftur sá, þótt uppskeran hafi verið rýr.
Eitt er að gera, annað að vilja.
Eitt hik gerir margt strik.
Eitthvað mistekst þá margt er haft í takinu.
Ekkert er svo vel gert að ekki verði að því fundið.
Ekki er ást sú auðslitin , er ungir bundu.
Ekki er fjandinn frændrækinn.
Ekki er fugl í höndum, þó fljúgi með ströndum.
Ekki er gaman nema gott sé.
Ekki er happi að hrósa fyrr en hlotið er.
Ekki er hundum helgidóm að bjóða.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Ekki er sjórinn sekur, þótt syndi ei allir fuglar.
Ekki er svo fögur eik að hún fölni ekki um síðir.
Ekki er sú betri músin er læðist en hin er stekkur.
Ekki er það einum bót, þó annar sé verri.
Ekki eru allar ástar í andliti fólgnar.
Ekki eru allar ferðir til fjár.
Ekki eru allar syndir guði að kenna.
Ekki gerir einn þröstur vor.
Ekki missir sá, sem fyrstur fær.
Ekki neytir ljóss, þegar lýsir sól.
Ekki vantar það sem fengið er.
Ekki verður bókvitið í askana látið.
Ekki verður þú helgur þó aðrir syndgi.
Ekki þarf nema einn gikk í hverri veiðiferð.
Eldurinn brennir líkamann, en hatrið sálina.
Eldmóðurinn kemur hjólum hugmyndaflugsins í gang.
Elskan dregur elsku að sér.
Engin er eik án kvista.
Engin kona verður skækja af eins manns völdum.
Enginn er allheimskur ef þegja má.
Enginn er annars bróðir í leik.
Enginn er hærri þó hann hreykji sér.
Enginn er of góður sjálfum sér að þjóna.
Enginn er réttláttur meðan hann er reiður.
Enginn dettur lengra en til jarðar.
Enginn gefur sér gæfuna sjálfur.
Enginn maður er alltaf vitur.
Enginn maður er svo mælskur, að honum segist vel nema hugur fylgi máli.
Enginn kann úr annars hálsi orð að kjósa.
Enginn skyldi einn í sorgum sitja.
Enginn skyldi spyrja fiskinn um það, sem gerist á landi.
Enginn spegill er betri en gamall vinur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Enginn verður óbarinn biskup.
Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur.
Engum er bót í annars böli.
Engum er lýti að því sem allir hafa.
Eyðist það er af er tekið.
Ef eldhús rýkur og kostur er í klefa, vantar ei vini.
Eggið kennir hænunni að verpa.
Einhver drekkur óskilabikar.
Einhvern tíma brennir sig sá sem öll soð vill smakka.
Einn biti gerir annan lostætan.
Ekki er allt fyrir augunum, sem eta skal.
Ekki er ár í illum staðargraut.
Ekki er firn í fíkjunni.
Ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið.
Ekki hentar hungri dvöl.
Ekki má vita hver gefur öðrum bita.
Ekki þarf að gefa bakarabarni brauð.
Ekki þarf að smjörga það flesk sem er nógu feitt.
Enginn veit hver ósoðna krás hlýtur.
Enginn verður af einum bita feitur.
Eyðslukona er eldur í búi.
Er á meðan er.
Ekki er allt gull sem glóir.
Einn er einmana saman.
Engin er rós án þyrna.
Ekki veldur sá er varir
Ekki er sama verkið eins virt fyrir öllum.
Einn veldur,annar geldur
Ekki vantar vini, meðan vel gengur
Ekki varast, nema vita
Ekki má varast, nema viti
Eftir vinnunni fara verkalaunin.
Ekki leikur veröldin eins við alla.
Einu sinni verður allt fyrst.
Ekki þarf að verjast, ef enginn sækir á.
Enginn vinnur, nema vogi.
Ekki eru vargar vinsælir
Enginn er svo rammviltur, að ei rati í munninn
Eigi veldur sá sem varar annan
Ekki er lengi varinn sagður
Engum er alls varnað
Ekkert fyrnist fljótar en velgjörðir
Eftir vinnunni eru launin.
Ekki er viljinn einhlítur
Enginn vilji brennur í helju.
Ein lygi hefur aðra í eftirdragi.
Enginn er betri kennari en neyð og fátækt.
Ekki er hollt að fá of oft vilja sínum framgengt.
Ekkert er jafn víst og hið óvænta.
Ef þorpari kyssir þig skaltu telja tennurnar. - Málsháttur frá gyðingum.
Enginn kannar dýpt fljóts með báðum fótum. - Afrískur málsháttur.
Enginn kannar dýpt fljóts með báðum fótum
Eitt orð í tíma er betra en tíu í ótíma.
Ef þú vilt ekki að neinn viti það, gerðu það þá ekki.
Ef þú getur ekki verið góður þá getur þú þó verið það besta sem þér er unnt að vera.
Ef þú ferð ekki upp á fjallið færðu ekki útsýni yfir dalinn.
Ef thu vilt biðja hund um eitthvað þá skaltu ávarpa hann "herra minn".
Eftir vinnunni fara launin.
Ef ekki væri "ef" og "en" væru allir ánægðir.
Engin nótt er svo löng að ekki komi dagur á eftir.
Engin lyf eru til handa þeim sem felur sjúkdóm sinn.
Ekkert tré er skuggalaust.
Ef þér líkar það góða sem þú sérð í öðrum gerðu það að þínu.
Enginn maður hræðist það sem hann sá vaxa úr grasi.
Ef þú hjálpar manni þá hjálpaðu honum til fulls. Ef þú bjargar manni þá bjargaðu honum til fulls.
Enginn er eins blindur og sá sem ekki vill sjá.
Ef fáfróður maður veit að hann er fáfróður, þá er hann ekki fáfróður.
Einhvern tíma brennir sá sig sem öll soð vill smakka.
Ekki er riðið þótt hnakkurinn sé kominn á bak.
Ef hundur yrði bænheyrður myndi rigna beinum.
Engar fréttir eru góðar fréttir.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Engin kona er svo reglusöm, að það sé ekki misskilningur af henni að vera stöðugt að skipa manninum að vera alltaf á sínum stað. - Kínverskt
Einstakt augnatillit ætti ekki að taka gilt sem vitni né leggja mikinn trúnað á þau ummæli sem mælt eru manni á bak. - Kínverskt
Enginn gráhærður öldungur má bera byrði á strætinu. - Kínverskt
Ein kynslóð sáir til trésins, önnur situr í skugga þess. - Kínverskt
Eftir höfðinu dansa limirnir.
Ekkert er svo slæmt að það gæti ekki verið verra.
Ef þú lætur alla troða á þér verður þú að gólfteppi.
Ekki skal lofa meiru en hægt er að standa við.
Ein lygi bíður annarri heim.
Ef tíminn er ekki með þér vertu þá með honum.
Einn dagur framundan er þér betri en tíu ár að baki.
Ef enginn stæði gegn mér gæti ég sigrað heiminn.
Ekki ganga allir eftir sama vegi.
Ef þú vilt kynnast manni skaltu veita honum vald.
Einn munnur, tvö eyru. Hlustaðu því meira en þú talar.
Ekkert svar er líka svar.
Enginn hefur sviða í annars sári.
Enginn verður hvítari þó annan sverti.
Eyðist það sem af er tekið.
Enginn fitnar af fögrum orðum.
Enginn eignast krónuna nema hirða eyrinn.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Ekki er ást sú auðslitin, er ungir bundu.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Engu spillir hægðin.
Eitt barn er sem ekkert, tvö sem tíu.
Enginn sér við öllum rokum.
Even a blind squirrel finds an acorn now and then.
Ekki fara víkingar að lögum.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Enginn lifir svo öllum líki.
Enginn múr sé svo hár að asni klyfjaður gulli komist ekki yfir hann