Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
 
 
Betri er fullur magi en fögur klæði.
Betri er lukka en löng bein. - bein: fótleggur
Bæ má af barni þekkja. - Fas eða framkoma barns vitnar eða ljóstrar upp um aðstæður á heimili.
Bættu svo bú þitt, að eigi skaðir annan.
Bylur hæst í tómri tunnu.
Botnlaust djúp er bágt að kanna.
Boga skyldi enginn of langt toga.
Blindur er hver í sjálfs síns sök.
Blessun vex með barni hverju.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Bítur á beittan öngul.
Biðlund sigrar alla hluti.
Beygðu kvistinm, meðan hann er ungur en brjóttu hann ekki.
Betur sjá augu en auga.
Betur draga tveir fuglar til hreiðurs en einn.
Betri er vist í horni á húsþaki, en sambúð við þrasgjarna konu.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betri er sonur þó síðalinn sé.
Betri er nábúi í nánd en bróðir í fjarlægð.
Betri er lítill heiður en langur skaði.
Betri er klók tunga en kempt hár.
Betri er frægð en fé.
Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.
Betri er dyggð en dýr ætt. - dýr: máttugur, voldugur.
Betra er yndi en auður.
Betra er seint en aldrei.
Betra er loflegt líf en langt.
Betra er ólofað en illa efnt.
Barnanna móður skaltu þér besta velja.
Batnandi manni er best að lifa.
Batnar oft við beiskan drykk.
Báðar verða hendur hreinni, ef hvor þvær aðra.
Besta gjöfin er gott fordæmi.
Betra er að árna góðs en afla móðs.
Betra er að bogna en bresta.
Betra er að deyja með sannleikann á vörunum, en lifa með lygina.
Betra er að hafa elskað og misst en hafa aldrei elskað.
Betra er að hefjast af litlu en krefjast af miklu.
Betra er að læra eitthvað gott af þeim illa, en illt af þeim góða.
Betra er að slitna af brúkun, en eyðast af ryði.
Betra er að stíga í eldinn en standa í honum.
Betra er að vera félaus en ærulaus.
Betra er að vera góðs manns frilla en gefin illa. - frilla: hjákona.
Betra er að vera ógiftur en illa giftur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betra er að vera laukur í lítilli ætt en strákur í stórri - laukur: kjarni, það besta af einhverju; strákur: skálkur.
Betra er að vera prýddur með gáfum en gjörvuleika.
Betra er brauð í poka en gull í pyngju.
Betra er brjóstvit en bókvit. - brjóstvit: meðfætt vit; bókvit: lærdómur fenginn úr bókum.
Betra er gott fylgi en frænda stoð.
Betra er heiðarlegt nei en falskt já.
Betra er heilt en vel gróið.
Betra er lán en liggjandi fé.
Baka þig, meðan eldurinn brennur. - baka sig: hita sér.
Betra er broddsviðið en brennt.
Betra er eplið gefið en étið.
Betra er hálft brauð en allt misst.
Betri er þunnur bjór en þurr botn. - þunnur bjór: lélegt skinn.
Betur skartar fullur kviður en fagur kyrtill.
Bíta mætti nú beinfiskur sem að borði yrði dreginn.
Bíta myndi þú, ef gott bein væri.
Bleð svo kállegginn að grói annað sinn. - bleðja: tína blöð af.
Bollar margir byrlarann trylla.
Borða má, þó bíti ei steikur.
Brjóta skal bein til mergjar. - mergur: fituríkur beinmergur; aðalatriði. Íhuga til hlítar. Rangt er að segja kryfja bein til mergjar - þá er verið að rugla saman "kryfja mál" og "brjóta til mergjar"
Býður enginn betur en sjálfur hefur.
Bregður ávexti til rótar. - bregða: bera keim af, svipa til.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Brauð er barna matur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Barn gefur barns svör.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Barnalund er blíð fædd.
Barnalán er betra en fé.
Bundinn er sá er barnsins gætir.
Bragð er að, þá barnið finnur.
Barnið vex en brókin ekki.
Brennt barn forðast eldinn.
Bregður barni til ættar.
Blindur er bóklaus maður
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Bitlaus er beiskur maður.
Best er það kjöt, sem beini er næst.
Best er að segja hverja sögu sem hún gengur.
Bágt er að verjast í vökinni.
Blautt er barns holdið.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betra er að vera góður en að þykjast.
Betra er að eitt sé að en allt.
Byrjaður skynsamlega. Vaninn mun gera sérhverja dyggð auðveldari og skemmtilegri en nokkurn löst.
Blómið á fjallstindinum vill ekki skipta við rósina í garðinum. - Afrískur málsháttur.
Bestur meðal manna er sá sem gleðst yfir velgengni annarra.
Betra er að spyrja tvisvar en villast einu sinni.
Bestu verkin eru fullunnin.
Bjalla er bjórfullur maður.
Betra er að eiga en að hafa átt.
Betra lítill og snar í snúningum en stór og latur.
Betra er að verjast sjúkdómum en lækna þá.
Betra er að vera fífl sjálfur en gera annan að fífli.
Betra er að játa sannri sök en neita.
Besta ráðið við drykkjuskap er að horfa ófullur á fullan mann. - Kínverskt
Bók sem ekki er opnuð er bara múrsteinn úr pappír. - Kínverskt
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betra er að deyja með sæmd en að lifa við skömm.
Betra er að deyja sparkandi en að láta sparka í sig deyjandi.
Betra er að eiga einn lifandi vin en hundrað dauða.
Betra er að hlusta vel en tala vel og betra er að breyta vel en hlusta vel.
Betra er autt rúm en illa skipað.
Bráð er barns lundin.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betra er krókur en kelda. - Annað þessu tengt en hefur samt öfuga merkingu: "Oft leiðir krókur til keldu"
Barn er móðurinnar besta yndi.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Betri er lítill fiskur en tómur diskur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Bljúg er barns lundin.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Blátt er betra en ekkert.
Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. - Hver maður er varnarlaus gegn árásum aftan frá nema e-r sé þar til að verja hann. Ber er hver að baki [á bakinu] nema sér bróður eigi. Í Njáls sögur segir: ..."Björn svaraði: "Aukist hafa heldur vandræðin kerling." Hún svarar fá og brosti að. Húsfreyja mælti þá: "Hversu gafst Björn þér Kári?" Hann svarar: "Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og gafst Björn mér vel. Hann vann á þremur mönnum en hann er þó sár sjálfur. Og var hann mér hinn hallkvæmasti í öllu því er hann mátti..." Í Í Grettis sögu segir: "Þá mælti Grettir: "Ber er hver á bakinu nema sér bróður eigi." Illugi kastaði skildi þá yfir hann og varði hann svo Gretti rösklega að allir menn ágættu vörn hans. "
.. að baki er algengara.
Blindur er hver á (í) sjálfs síns sök.