Tilvitnun.is  Við lifum öll undir sama himni, en ekki hafa allir sama sjóndeildarhringinn. - Konrad Adenauer
 
 
Allir brosa á sama tungumáli.
Af góðum hug koma góð ráð.
Af sárri reynslu vitið vex. - sár: sorglegur; menn verða hyggnir af dapurri reynslu.
Að hika er sama og tapa.
Að kvöldi skal ósáttum eyða. - Menn eiga ekki að vera minnugir á misgerðir, heldur sættast.
Að hika er sama og að tapa.
Af litlum neista verður oft mikið bál. - Oft þarf ekki mikið til að koma af stað illdeilum.
Af máli má manninn þekkja.
Af nauðþurftinni sprettur trúarstyrkleikinn.
Af nátturunni eru allir menn eins, en uppeldið gerir þá misjafna.
Af tvennu illu skaltu hvorugt velja.
Af vondum lögum versna siðir.
Aldraða láttu ofarlega sitja. - Merkir: berum virðingu fyrir eldra fólki.
Aldrei er góðum liðsmanni ofaukið.
Aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Aldrei er of seint gott að gjöra.
Aldrei er sá einn, sem nýtur samneytis góðra hugsana.
Aldrei er svo brot bætt, að betra sé eigi heilt.
Alla brestur eitthvað.
Allar gjafir þiggja laun. - Maður er skuldbundinn þeim, sem gerir manni gott.
Allir bræður mega eitt kál súpa.
Allir eldar brenna út um síðir.
Allir eru jafnsterkir á svellinu.
Allir eru vinir meðan vel gengur.
Aumur er iðjulaus maður.
Aumur er barnlaus bær.
Aumt er ástlaust líf.
Augu húsbóndans gera meira en hendur hans.
Auðkenndur er asninn á eyrunum.
Athugalaus maður gengur um skóginn án þess að sjá nokkurt tré.
Annars byrði er öðrum létt.
Aldrei er góð visa of oft kveðin.
Allt þykir elskunni dáfrítt. - elska: sá, sem er elskaður -- Til er líka: oft er elskan amalynd
Allt verður gæfumanni að láni.
Allt tekur enda um síðir.
Allt stórt skeður í kyrrþey.
Allt kemst þó hægt fari.
Allt fagurt er augum þekkt. - þekkur: geðfellt
Allt er vænt sem vel er grænt.
Allt er leyfilegt í ástum og stríði.
Allt er í göngufæri hafi maður nægan tíma.
Allt er gott við góðan að eiga.
Allt er gott þá endirinn er góður.
Allt er fyrir vin sinn vel gerandi.
Allt er fertugum fært.
Alls staðar er sá nýtur, sem nokkuð kann.
Allir þurfa hjálpar við.
Allir hlutir eru svartir í myrkri.
Allir renna blint í sjóinn.
Aldrei blessast ófrjálst brauð, þó ávaxtist. - Ófrjálst brauð: illa fengið brauð, illa fenginn arður.
Allflest munu eggin með freknum. - egg með freknum: doppótt egg; það er fá egg eru alveg hvít, fáir eru vammlausir (gallalausir).
Allt er gott kjötkyns, sagði karlinn, og át kapalhildirnar. - kapalhild: fósturfylgja merar; kapall: meri, hryssa
Allt er það gott sem af korni kemur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Auðginnt er barn í bernsku sinni.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Allt sem kemur aftur fer.
Að þora er að tapa fótfestunni um stund, að þora ekki er að tapa sjálfum sér.
Altíð rennur vatn sem verið hefur
Af góðum hug koma góð verk.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Allt skal með varúð vinna.
Allur er nýr varningurinn góður.
Að kveldi skal dag lofa.
Allt ungviði leikur sér.
Allir hafa börn verið.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Að þykir barninu, þá það grætur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Allir eru ógiftir í verinu.
Að lofa velgjörðir á bak er að fá þær í fyrir
Allt verður einhvern veginn að vera.
Allur er varinn góður
Arta má vínber, ef vaxa skulu. - Arta: hlynna að, hirða um.
Að því spyr veturinn, hvað sumarið aflar.
Auðvelt þykir verk í annars hendi.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Allir kunna ráð nema sá sem í voðanum stendur.
Allir vegir liggja í tvær áttir.
Að tala er að sá, að hlusta er að uppskera.
Að vita allt er að vita ekkert.
Að heyra hundrað sinnum er ekki jafn gott og að sjá einu sinni.
Andartaks skortur á umburðarlyndi getur kostað ævilanga iðrun. - umburðarlyndi: jafnaðargeði; iðrun: eftirsjá
Auðvelt er að beygja líkamann, erfiðara er að beygja viljann.
Aðeins þín hönd aflar þér þess sem þú vilt fá.
Að hjálpa manni ekki í neyð er að drepa hann í hjarta sínu.
Að stríða við sjálfan sig er erfiðast af öllu; að sigra sjálfan sig er sá fegursti sigur.
Að sýna þakklæti er að tryggja framtíð sína.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Allra vinur er einskis vinur.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Að kunna ekkert er engin skömm, en að vilja ekkert læra er skömm.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Aflaðu þér vina meðan þú þarfnast þeirra ekki.
Að þiggja greiða er að selja frelsi sitt.
Aldrei er fangelsi fagurt né frelsi ljótt.
Allir fuglar úr eggi skríða.
Allt má kaupa annað en tíma.
Allir vilja lifa lengi en enginn vill verða gamall.
Auðveldara er að tala en að segja eitthvað.
Auðveldara er að segja "fjall" en klífa það.
Annars byrgði er öðrum létt.
Allt vill lagið hafa.
Allt er hreinum hreint. - Svipað á ensku: "Cleanliness is next to godliness." Bein þýðing: Hreinlæti gengur næst guðrækni.
Að verja mistök er að endurtaka þau.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: 
Alvöru umbótarmenn bæta sjálfan sig.
Að geta þagað er ágæt íþrótt.
Aldrei kemur góður dagur of snemma.
Allt sýnist feigum fært. - Merkir að menn, sem hvort eð er eru feigir, láta ekkert aftra sér.
Allt er betra en borðið bert.
Af reiðskapnum má riddarann kenna.
Senda tilvitnun í tölvupósti
Leitarorð: